Umsagnir

Hér eru nokkrar umsagnir frá íþróttamönnum sem hafa æft undir leiðsögn Silju.


Silja er ekki bara hágæða snerpu og hraðaþjálfari heldur er hún einstök manneskja með mikinn metnað. Það hafa verið forréttindi fyrir mig að fá að æfa hjá henni og ég hlakka alltaf jafn mikið til að koma í frí til íslands til að láta hana þræla mér út. Silja nær að sjóða saman bæði góðar, erfiðar og skemmtilegar æfingar sem nýtast öllum íþróttamönnum sem vilja ná enn lengra í íþrótt sinni. Ég hef bætt styrk minn og hraða umtalsvert eftir að ég byrjaði að æfa hjá Silju og ég get ekki beðið eftir að bæta mig enn frekar.
Margrét Lára Viðarsdóttir landsliðs kona í knattspyrnu
 
Silja hefur hjálpað mér með að auka vöðvamassa, bæta snerpu og stökkkraft með bæði skemmtilegum og krefjandi æfingum. Hún hjálpaði mér einnig að halda líkamanum í toppstandi út langt tímabil og missa ekki sjónar af markmiðum mínum.
Silja var ein af bestu íþróttamönnum landsins og vann til fjölda verðlauna á sínum ferli, þessa reynslu og þekkingu sem hún býr yfir notar hún til að gera þig af þeim íþróttamanni sem þú vilt vera. Topp þjálfari og frábær karakter!
Ólafur Andrés Guðmundsson, handknattleiksmaður Kristianstad Svíþjóð
"Ég fann strax mikinn mun á mínu líkamlegu formi þegar ég byrjaði að æfa hjá Silju Úlfarsdóttur. Eftir aðeins 3 vikur var ég búin að auka snerpu og sprengikraft til muna og líkamlegur styrkur var orðin mikið meiri. Eftir að hafa æft heilt undirbúningstímabil hjá henni fór ég aftur út til Noregs til að spila og fann hvað ég var vel undirbúin til að spila í einni bestu deild í heimi.Hver einasta æfing var krefjandi en á sama tíma skemmtileg og ég hlakkaði alltaf til að mæta á æfingu hjá Silju. Það sem mér fannst skína í gegn er metnaðurinn sem hún hafði fyrir mína hönd og að hún lagði sig alla fram til að hjálpa mér að verða betri. Ég myndi mæla með því við alla metnaðarfulla einstaklinga sem langar að ná langt í sinni íþrótt að æfa hjá Silju. Hún er einfaldlega frábær."
Rakel Dögg Bragadóttir, Fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik
Auk þess að vera hrikalega skemmtileg er Silja algjör snillingur í sínu fagi og án efa sú allra færasta. Það er virkilega þægilegt að vinna með svona metnaðarfullum þjálfara sem hefur jafn djúpstæða þekkingu í sinni grein.
Mist Edvardsóttir, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Vals
Silja hefur hjálpað mér ótrúlega mikið í að bæta hlaupastílinn, auka hraðann og snerpuna hjá mér og auðvitað komið mér í fanta gott form. Árangurinn hefur farið fram úr mínum björtustu vonum og er það mikið henni að þakka. Hún er dugleg, skipulögð og mjög metnaðarsöm þegar kemur að æfingum og hvetur hún mann áfram af miklum krafti. Það er aldrei leiðinlegt á æfingum hjá henni enda er hún Hafnfirðingur og með húmorinn í lagi. Ég mæli hiklaust með Silju ef þér langar til að bæta hraða, hlaupastíl og snerpu eða þá bara að vera í góðum félagsskap hjá skemmtilegum þjálfara.
Fannar Hilmarsson, knattspyrnu maður í Víking Ólafsvík
Silja er frábær þjálfari og ekki síðri persónuleiki, skemmtileg og með gríðarlega góðar æfingar, sem skila sér vel inní fótboltann. Hún er dugleg að minna á andlegu hlutina líka, sem skipta miklu máli, Silja er ein með öllu og ég gef henni mín allra bestu meðmæli !
Guðjón Baldvinsson leikmaður Noregi
"Silja hefur hjálpað mér mikið í að bæta hlaupastílinn, auka hraðann og snerpuna hjá mér. Kemur mer í form aftur áður en ég held út í undirbúningstímabilið mitt, með erfiðum en góðum æfingum. Ekki hægt að kvarta yfir neinu á æfingunum hjá henni enda skemmtilegur og topp þjálfari þar á ferð."
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Tottenham
"Silja er ein skipulagðasta og metnaðarfyllsta manneskja sem ég hef kynnst. Hún nær alltaf árangri í því sem hún leggur fyrir sig enda margverðlaunuð frjálsíþróttadrottning. Þess vegna mæli ég eindregið með henni því hún býr yfir hafsjó af þekkingu og er líka bara svo fjandi skemmtileg."
Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði Íslandsmeistara FH í fótbolta og landsliðsmaður.
"Silja hefur aðstoðað Víkingsliðið í vetur þar sem unnið hefur verið með hraða, kraft, snerpu, hlaupastíl og hraðaúthald.
Þjálfunin hefur verið markviss, skemmtileg og aukið víðsýni leikmanna á eigin líkamsþjálfun.
Auk þess hefur hugur leikmanna opnast enn frekar varðandi aðrar áherslur í þjálfun hraða og hraðakrafts.
Flottar æfingar og skemmtilegur þjálfari sem nær vel til leikmanna."
 Leifur S. Garðarsson þjálfari meistaraflokks Víkings í fótbolta
 "Mér finnst ótrúlega gaman á séræfingum hjá Silju. Ég hef bætt snerpuna, hraðari í sprettum og finn að ég er allur sterkari. Ég hef lært margar nýjar æfingar sem hjálpa mér að bæta mig sem fótbolta- og íþróttamann"
Hörður Ingi 5fl. (12 ára)









 
"Þjálfuninn hjá Silju er alltaf mjög skemmtileg og ég hlakka alltaf til að mæta. Silja er mjög skemmtileg og er með húmorinn í lagi.  Þjálfuninn hefur skilað mér mjög góðum árangri og eins og pabbi og fleiri segja: "þú ert orðinn annar og miklu betri knattspyrnumaður en þú varst".  Hún er með fjölbreyttar og alltaf skemmtilegar æfingar sem auka hraða, stökkkraft og snerpu. Æfingarnar taka mikið á og maður fær rosalegar hasperur á eftir.  Ég mæli með þessu fyrir alla, byrjendur sem afreksmenn (eins og silja orðaði það). :-)"

Viktor Helgi Benediktsson (12 ára)
Leikmaður Shellmóts- og Íslandsmeistara FH 2008